YRKJU með JAÐARBERI lauk í gær, sunnudaginn 22. maí þegar Jaðarber flutti verk Berglindar Maríu Tómasdóttur Jaðarber got hæfileikar í Mengi.
Í hæfileika- og tónlistarkeppninni Jaðarber Got hæfileikar öttu hæfileikabúntin Tinna Þorsteinsdóttir, Grímur Helgason og Kristín Þóra Haraldsdóttir kappi hvert við annað og sýndu fádæma færni í miðlun nútímatónlistar. Keppendur spreyttu sig á ólíkum þrautum m.a. að leika tóninn a og spila tónverk eftir grafísku skori. Eftir harða keppni stóð Tinna Þorsteinsdóttir uppi sem sigurvegari.
Dómarar voru allir þungavigtarmenn á sviði tónlistar, þau Atli Ingólfsson, Halla Oddný Magnúsdóttir og Elísabet Indra Ragnarsdóttir. Kynnir var hinn eini sanni Guðmundur Felixson.
Jaðarber got hæfileikar var hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og var verkið unnið í YRKJU, starfsþróunarverkefni Tónverkamiðstöðvar fyrir ný tónskáld. Yrkja nýtur styrkja frá Reykjavíkurborg og Tónskáldasjóði RÚV.
Comments